Um Bjarkalund

Hótel Bjarkalundur hefur fengið nýja heimasíðu: www.bjarkalundur.com

Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit stendur rétt við þjóðveginn vestur á firði, á leiðinni milli Berufjarðar og Þorskafjarðar. Það var byggt af Barðstrendingafélaginu árið 1945-1947. Hótelið hefur verið starfrækt alla tíð síðan og telst það því elsta sumarhótel landsins.

Frá Bjarkalundi er „stutt í allar áttir“ og fjölmargar gönguleiðir við allra hæfi. Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa gefið út ýmis kort og handhægar leiðarlýsingar á þessu svæði.
Skammt frá Bjarkalundi er afleggjarinn til Reykhóla, sem liggur m.a. um hina blómfögru Barmahlíð („Hlíðin mín fríða“). Rétt hjá Barkalundi er Berufjarðarvatn, en úr því rennur Alifiskalækur út í Þorskafjörð. Nafn þessa lækjar er þekkt úr íslenskum fornritum (Þorskfirðingasögu) og fyrsti vitnisburður um fiskirækt á Íslandi (og þó víðar væri leitað).

Meðal merkilegra og fallegra náttúrufyrirbæra í næsta nágrenni við Bjarkalund má nefna Borgarland milli Berufjarðar og Króksfjarðar. Það eru sérkennilegar bergmyndanir, minjar um forna eldvirkni. Mikið ber á Bjartmarssteini eða Pjattarsteini, sem er kaupstaður álfa, gígtappi sömu ættar og Vaðalfjöllin sem gnæfa tignarlega norðan við Hótelið. Þau eru reyndar ekki fjöll í venjulegum skilningi, heldur tveir samvaxnir gígtappar sem setja mikinn svip á umhverfið.

Frá Bjarkalundi upp að Vaðalfjöllum er ljúf gönguferð fyrir alla. Þar má skoða þessa stórfenglegu náttúrusmíð og svo geta sumir farið alla leið upp og notið hins einstæða útsýnis úr rúmlega 500 metra hæð. Þar sér niður á Þorskafjörðinn en við fjarðarbotninn voru Kollabúðafundir haldnir á 19. öld.

Vaðalfjöll í allri sinni dýrð

Vaðalfjöll í allri sinni dýrð

Hótel Bjarkalundur

Bjarkalundi
380 Reykhólahreppi
Sími: 434 7762
Sími: 434 7863
Farsímar: 695 2091 / 894 4302

Búa til PDF-skrá
Póstlisti